Vínkonan að þessu sinni er Elísabet Englandsdrottning

Sagt er að eftirlætis drykkur Englandsdrottningar sé Dubonnet koktail sem hún njóti alla daga fyrir hádegismat. Nú veit ég ekki hversu satt þetta er. En ég held að það sé óhætt að gera ráð fyrir að þar sem þessi drykkur var í miklu uppáhaldi hjá drottningar móðurinni, að þá hafi hún hann stöku sinnum henni til heiðurs!

  • Hvernig er hann búinn til?  Drottninginn vill hann blandaðan  tveir hlutar Dubonnet og einn hluti Gin. Hrærður með tveimur ísmolum og einum sítrónufleyg.  -Einfallt var það!
  • Hvað er Dubonnet?  Drykkurinn var fundinn upp af franska efnafræðingnum Joseph Dubonnet árið 1846 – upphaflega vegna meintra lækningaeiginleika gegn malaríu en en fljótlega samþykktur sem drykkur ánægjunnar vegna

Þessi rúbínrauði vökvi er í raun tegund af  rauðvíni sem er kryddað með kryddjurtum og kryddi, þar með talið te, sólberjum og kíníni. Þessi innihaldsefni gefa drykknum ríkt, ávaxtaríkt og örlítið bitur-sætt bragð.

Skál fyrir drottningunni!