Vínkona dagsins

Einn uppáhalds drykkur Díönu Prinsessu var Peach Bellini.

Hún drakk ekki oft áfenga drykki en þegar það gerðist þá varð fyrir valinu Peach Bellini eða þurrt hvítvín. Sagan segir að að hún hafi t.d. drukkið Peach Bellini þegar hún laumaði sér úr höllinni klædd sem karl og heimsótti bar með Freddi Mercury. Vá hvað hefði verið gaman að vera með þeim!

Peach Bellini:

Tvær meðalstórar ferskjur, afhýddar og skornar í teninga

Hálfur bolli vatn

Ein tsk. sítrónusafi

Smá sykur

Ein flaska Prosecco, kampavín eða þurrt freyðivín

  1. Maukið ferskur, vatn, sítrónusafa og sykur í blandara þar til það er mjúkt.
  2. Fylltu kampavínsglas að fjórðung af maukinu og fylltu síðan með Prosecco, kampavíni eða freyðivíni.
  3. Skál !