Englendingurinn Joseph Priestley fann árið 1767 upp aðferð til að búa til sódavatn með því að metta vatn með koltvísýringi. Aðferðin var þróuð áfram af ýmsum og fljótt var byrjað að blanda bragðefnum saman við sódavatnið. Í byrjun var gosið talið heilsusamlegt og var víða selt í apótekum. Við Íslendingar vorum fljót að taka við […]