Limoncello er ekta ítalskur sítrónulíkjör sem er afar vinsæll á Ítalíu. Hann er sagður vera annar vinsælasti líkjörinn þar á landi (vinsælastur er Campari). Hann er aðallega framleiddur á suður-Ítalíu.
Líkjörinn er borinn fram ískaldur – yfirleitt beint úr frysti og er ýmist boðið upp á hann fyrir eða eftir mat. Líkjörinn er líka vinsæll í ýmsa kokteila, sætabrauð eða ís.
Mér finnst hann bestur beint úr frysti, blandaður með lime Klaka eða sódavatni og búbblum!

