Eitt af uppáhalds rauðvíni Vínkonunnar kemur frá Sterling Vineyards. Sterling Vineyards eru í Napa Valley og er staðurinn mjög vinsæll að heimsækja í vínsmökkun og fleira.
The Coca Cola Company keypti Sterling Vineyards árið 1977 í sinni stuttu tilraun til að komast á vínmarkaðinn en seldu það aftur árið 1982. Sterling vínin hafa síðustu fimm ár verið opinbert vín Emmy verðlaunanna.
Sterling Vintner´s collection Cabernet Sauvignon er framúrskarandi Cabernet með ljúfengum ávöxtum, vanillu og kryddað eftirbragð. BRAVÓ!
Því miður fæst vínið ekki í vínbúðunum og vona ég svo innilega að það verði breyting á því fljótt. En á t.d. á Kol Restaurant er hægt að smakka þessa dámsemd.