Nostalgía

Vínkonan ákvað að skella sér í nostalgíukast og bragða á Bell’Agio Chianti 2017.

Vínkonan man svo vel eftir svona bastflöskum í kringum 1980 þar sem þær héngu í loftum og á veggjum ítalskra veitingahúsa og í herbergjum unglinga mátti sjá þær notaðar sem kertastakja. Bell‘Agio er ítalska og þýðir í raun afslappaður lífsstíll. Flöskurnar eru kallaður Fiasko á ítalíu og má finna fyrstu heimildir um þær í smásagnasafni frá 14. öld. Í byrjun 20. aldar voru eittþúsund glerblásarar og 30.000 vefarar sem unnu við gerð þessara flaska!

Bell’Agio Chianti sem kemur frá Toscana og er gert úr þrúgunum Sangiovese (90%) og hin 10% eru Canaiolo Nero, Malvasia og Trebbiano. Vínið er látið gerjast í stáltönkum og síðan geymt í 3 mánuði á flöskum áður en það er sett í sölu. Bell’Agio Chianti DOCG 2017 er rúbínrautt á lit með fjólubláum tónum, unglegt. Það er ávaxtaríkt en það fer lítið fyrir tannínum og fyllingin er ekki mikil. Hentar flott með pasta, ostum og pizzu. Elska svona NOSTALGÍU!