Núna getum við loksins keypt La Bette by Jeff Carell í Vínbúðunum hér heima.
Vínið kemur frá Cotes du Roussillon Villages.
Miðinn á flöskunni er mjög fallegur með tákrænum myndum fyrir Roussillon svæðið og vísar í auðæfi þess í menningu á landi og sjó, víngerð og sjómenn. La Bette er einmitt nafnið á einstökum fiskibátum sem er notaður við Miðjarðarhafið.
Vínið er 75% Syrah, 15% Carignan og 10% Grenache. Allt við vínið minnir á suður svæði Frakklands, örlætið er allstaðar. Safaríkir dökkir ávextir og mikill karakter sem kemur í gegn á léttum krydduðum nótum.
Vínið minnir á allt það góða í lífinu!
Dökkkirsuberjarautt, þétt meðalfylling, ósætt, mild sýra og miðlungs tannín.nu!
Algjörlega frábært vín!