Kvikmyndin Sideways er í miklu uppáhaldi hjá Vínkonunni. Hún hvetur alla vínáhugakonur & menn sem ekki hafa séð myndina að sjá hana. Sideways var frumsýnd 2004 og myndin kveikti vínáhuga í brjóstum mjög margra og gerði þrúguna Pinot Noir (uppáhalds þrúga vínkonunnar) að stórstjörnu. Eftir vinsældir Sideways jókst framleiðsa á Pinot Noir um 170% í Kaliforníu. Frægasta setning myndarinnar er „I am not drinking any fucking Merlot!” Það er meðal annars hægt að nálgast myndina á Stöð 2 Maraþon.
Góða skemmtun og Skál!