Frábær rauðvín undir 1.500 kr.


Ef þú ert vínkona eins og ég gætirðu oft verið að leita að gæða vínum án þess að eyða miklu. Í vikunni gerði ég klassískt Beef Bourguignon, og keypti tvær ódýrar rauðvínsflöskur til að nota í réttinn. Þessar tvær flöskur komu virkilega á óvart.!! Þær gáfu réttinum frábært bragð og sönnuðu einnig að gott vín þarf ekki að vera dýrt. Þegar það er verið að elda bragðmikla rétti eins Beef Bourguignon, getur notkun góðs víns aukið bragðið. Hins vegar er auðvelt að festast í því að hugsa að aðeins dýr vín séu málið. Raunverulega eru margar skemmtilegar valkostir í boði á viðráðanlegu verði, sem henta vel bæði til við eldamennsku og til drykkjar.

Hér eru mínar tillögur að góðum vínum undir 1.500 kr.

• Roche Mazet Cabernet Sauvignon


• Verð: 1.399
• Svæði: Languedoc-Roussillon. Frakkland
• Bragðlýsing: Það gefur frá sér fínan ilm af vanillu, rauðum ávöxtum og kryddi. Vín með djúprauðum lit, það býður upp á góða uppbyggingu með mjúkum tannínum og góðri lengd í bragði.
Þetta vín passaði vel með þessum bragðmikla rétt. Passlega sýran jók á bragðið í Beef Bourguignon, sem gerir það að fullkomnum vin í eldamennskuni—eða til að njóta í glasi á eigin forsendum!

Fæst hér:

https://www.veigar.eu/vara/roche-mazet-cab-sauvignon-750ml-147595


• Verð: 1.299 kr.
• Svæði: Lisboa. Portúgal
• Þrúga: Cabernet Sauvignon, Castelao Syrah, Touriga franca
• Bragðlýsing: Mjög þægilegt en margslungið vín með tiltölulega ríku berjabragði. Einnig nótur af eik og vanillu. Mjúk tannín.

Fæst hér:
https://www.veigar.eu/vara/portuga-red-750ml-151239


Að finna góð rauðvín undir 1.500 kr er ekki aðeins mögulegt, heldur getur það einnig verið skemmtileg ferð. Hvort sem þú ert að elda, halda veislur, eða einfaldlega slappa af heima, sanna þessi vín að gæði þurfa ekki að vera dýr. Ég hvet þig til að kanna hinar ýmsu vefverslanir og uppgötva þitt eigin uppáhalds!
Hér er listi yfir hinar ýmsu Vín vefverslanir https://vinkonan.is/vin-i-vefverslunum/
Hefur þú prófað einhver dásamleg ódýr rauðvín á síðustu dögum? Deildu með mér þínum tillögum: vinkonan@vinkonan.is

No comments to show.