Ef þú ert vínkona eins og ég gætirðu oft verið að leita að gæða vínum án þess að eyða miklu. Í vikunni gerði ég klassískt Beef Bourguignon, og keypti tvær ódýrar rauðvínsflöskur til að nota í réttinn. Þessar tvær flöskur komu virkilega á óvart.!! Þær gáfu réttinum frábært bragð og sönnuðu einnig að gott vín […]
Vínsmökkun
Sumar í glasi!
Limoncello er ekta ítalskur sítrónulíkjör sem er afar vinsæll á Ítalíu. Hann er sagður vera annar vinsælasti líkjörinn þar á landi (vinsælastur er Campari). Hann er aðallega framleiddur á suður-Ítalíu. Líkjörinn er borinn fram ískaldur – yfirleitt beint úr frysti og er ýmist boðið upp á hann fyrir eða eftir mat. Líkjörinn er líka vinsæll […]
La Bette by Jeff Carell
Núna getum við loksins keypt La Bette by Jeff Carell í Vínbúðunum hér heima. Vínið kemur frá Cotes du Roussillon Villages. Miðinn á flöskunni er mjög fallegur með tákrænum myndum fyrir Roussillon svæðið og vísar í auðæfi þess í menningu á landi og sjó, víngerð og sjómenn. La Bette er einmitt nafnið á einstökum fiskibátum sem […]
Súkkulaði og vín
Núna þegar páskarnir eru á næsta leiti fara margir að detta í súkkulaðiveislu oftast í formi páskaeggja en auðvitað eru margir sem kjósa einnig konfekt, trufflur ofl. Vínkonan er búin að vera að leika sér að para saman rauðvín og súkkulaði. Þetta getur verið margslungið því að möguleikarnir eru óendanlegir og súkkulaði er ekki bara […]
Nostalgía
Vínkonan ákvað að skella sér í nostalgíukast og bragða á Bell’Agio Chianti 2017. Vínkonan man svo vel eftir svona bastflöskum í kringum 1980 þar sem þær héngu í loftum og á veggjum ítalskra veitingahúsa og í herbergjum unglinga mátti sjá þær notaðar sem kertastakja. Bell‘Agio er ítalska og þýðir í raun afslappaður lífsstíll. Flöskurnar eru […]
Amarone vín
Vínkonan er mjög hrifin af Amarone vínum og þar er Tommasi Amarone Valpolicella Classico algjörlega frábært vín. Sérstaða Amarone vína: Reglur kveða á um að þrúgurnar eiga að vera handtíndar og síðan á að þurrka þær þannig að þær missa um um 40% af vökvainnihaldinu. Vín er síðan unnið úr þessum þrúgum með langa og […]
BriO de Cantenac Brown Margaux 2015.
Ef ykkur langar til að kynnast töfrum Bordeaux vína þá mælir Vínkonan klárlega með BriO de Cantenac Brown Margaux 2015. Við heyrum mikið talað um gæði og töfra franskra rauðvína frá Bordeaux og Bourgogne. Er þessi orðrómur sannur? Ef ykkur langar til að sannreyna hann mæli ég með Brio de Cantenac Brown. Algjörlega frábært rauðvín […]
Aldo Vajra Langhe Nebbiolo 2018
Aldo Vajra Langhe Nebbiolo 2018 er kirsuberjarautt. Þétt fylling, ósætt, fersk sýra og þétt tannín. Kirsuber, brómber, skógarber, blóm, ólífur. Meðalfyllt vín og nokkuð bragðmikið. Hentar frábærlega með páskalambinu eða bara til að njóta eitt og sér.Nebbilo þrúgan hefur gefið af sér mörg af topp vínum Ítalíu. Hún hefur gert Barolo svæðið í Piedmont frægt […]
Crémant
Vínkonan elskar Crémant freyðivín! Flest Crémant vínin eru gerð með svipuðu sniði og kampavín, þrúgurnar eru Pinot Noir & Chardonnay í flestum tilvikum og vínin gerð með sömu aðferð og Champagne.Crémant-vín kosta aðeins brot af verði Kampavíns en þau bestu geta verið nálægt þeim í gæðum.Bouillot sérhæfir sig í framleiðslu á Crémant-vínum sem eru hin […]
Sterling
Eitt af uppáhalds rauðvíni Vínkonunnar kemur frá Sterling Vineyards. Sterling Vineyards eru í Napa Valley og er staðurinn mjög vinsæll að heimsækja í vínsmökkun og fleira. The Coca Cola Company keypti Sterling Vineyards árið 1977 í sinni stuttu tilraun til að komast á vínmarkaðinn en seldu það aftur árið 1982. Sterling vínin hafa síðustu fimm […]