Burns Night, eða Burns-nótt, er óopinber þjóðhátíðardagur Skotlands.
Hann á sér langa sögu og fer fram 25. janúar, á afmælisdegi þjóðskálds Skota, Robert Burns, sem er nokkurs konar Jónas Hallgrímsson þessarar frændþjóðar okkar. Gera menn þá vel við sig í skoskum mat og drykk, njóta skoskrar þjóðlagatónlistar og hlýða á upplestur á ljóðum skáldsins.
Matseðil í kringum hátíðina samanstendur af Haggis með stöppuðum kartöflum, rófum, næpum og viskísósu (Haggis, Neeps & Tatties).

Auðvitað á skoskt viskí líka að vera á matseðlinum. Viskí passar vel með Haggis, og því er það líka borið fram með kvöldmatinum en ekki bara sem drykkur eftir kvöldmatinn. Clansman Blended Scotch passar einstaklega vel með Haggis.


Frá hátíðlegum Haggis til tímalausra orða Burns um góðvild og vináttu, þá minnir Burns Night okkur á það sem raunverulega skiptir máli: góður félagsskapur, góðar sögur og kannski smá viskí (wee dram) til að skola öllu niður.
En eins og Burns trúði sjálfur, ef þú átt góða vini, þá hefurðu þú ríkidæmi!
Þess vegna er mikil áhersla á Burns Night að sameina fjölskyldur og vini þar sem allir koma saman í góðum anda, að deila sögum og minningum.

