BriO de Cantenac Brown Margaux 2015.

Ef ykkur langar til að kynnast töfrum Bordeaux vína þá mælir Vínkonan klárlega með BriO de Cantenac Brown Margaux 2015.

Við heyrum mikið talað um gæði og töfra franskra rauðvína frá Bordeaux og Bourgogne. Er þessi orðrómur sannur?

Ef ykkur langar til að sannreyna hann mæli ég með Brio de Cantenac Brown. Algjörlega frábært rauðvín og gefur manni kost á að fá alvöru Bordeaux af Grand Cru ekru fyrir töluvert minni peninginn en “stóru” Château-vínin. Ekki skemmir fyrir að vínekran var stofnuð af Skotanum John Lewis Brown fyrir meira en 200 árum (núna verða Skoskir vinir vínkonunnar ánægðir). Vinnusemi hans var verðlaunuð 1855 þegar vínekran komst í hóp bestu vínekra Bordeaux. Blandan í Brio er 47% Cabernet Sauvignon, 42% Merlot og 11% Cabernet Franc. Dökk ber, þroskuð sólber og svört kirsuber, pipar, og krydd, góð fylling og þétt og fín tannín. Fínt til neyslu núna en mælt er með umhellingu 1-2 klst. áður en vínið er borið fram.