Amarone vín

Vínkonan er mjög hrifin af Amarone vínum og þar er Tommasi Amarone Valpolicella Classico algjörlega frábært vín.

Sérstaða Amarone vína: Reglur kveða á um að þrúgurnar eiga að vera handtíndar og síðan á að þurrka þær þannig að þær missa um um 40% af vökvainnihaldinu. Vín er síðan unnið úr þessum þrúgum með langa og hæga gerjun, sem getur tekið allt að tvo mánuði, og síðan eldist vínið í eikartunnum, stundum í nokkur ár – eða í sumum tilfellum allt að áratug. Þetta er erfitt og tímafrekt ferli sem eykur verulega framleiðslukostnaðinn. Útkoman er vín sem er margslungið, gefur góða fyllingu með votti af þurrkuðum vínberjum og negul með ákafan ilm mikinn karakter.