Wine gums, þessi eftirsóttu mjúku, sælgætishlaup, hafa verið vinsæl í Bretlandi í rúma öld, en það eru margir sem spyrja: Er vín í Wine gums?
Saga Wine gums hófst árið 1909 þegar Charles Gordon Maynard, sem var góðtemplari, ákvað að búa til sælgæti sem gæti verið kynnt sem valkostur fyrir áfengi!
Maynard vildi bjóða upp á bragðgóðan kost sem drægi úr áfengisneyslu, og skapaði sælgæti sem hann vonaði að fólk gæti notið eins og hefðbundins víns, en án áfengis.
Þannig Wine gums inniheldur EKKI vín!
Faðir Charles Gordon Maynard byrjaði árið 1880 að framleiða sælgæti í eldhúsinu sínu ásamt bróðir sínum. Síðan árið 1896 stofnuðu þeir Maynard.
Það tók Charles Gordon Maynard töluverðan tíma að sannfæra föður sinn, sem var strangur methodisti. Faðirinn sanfærðist að lokum og lagði Wine gums grunnin að sælgætis veldinu sem var selt til Cadbury 1985.
Sjáðu skemmtilega auglýsingu frá 1993:


Blaða auglýsing frá 1958