Châteauneuf-du-Pape

Vínkonan er mikill aðdáandi Châteauneuf-du-Pape rauðvína.

Châteauneuf-du-Pape eru frönsk vín sem þekkt eru fyrir djarfar rauðar blöndur sem byggja á Grenache þrúgunni. Á svæðinu eru framleidd bæði rauð- og hvítvín úr allt að 13 mismunandi þrúgum. Grenache er mest notaða þrúgan í héraðinu en einnig eru Mourvédre og Syrah mikið notaðar, einnig þekkt sem GSM blandan. Bragðið getur því verið breytilegt eftir mismundandi þrúgusamsetningum en gæðin eru alltaf til staðar.

Ef það er eitthvað franskt vín sem allir eiga að smakka þá mæli ég með Châteauneuf-du-Pape!

Vínin frá þessu svæði hafa óaðfinnanlegt orðspor. Nafnið Châteauneuf-du-Pape kemur frá frægu frönsku vínaþorpi við bakka Rhône. Nafnið Châteauneuf-du-Pape þýðir Nýi kastali páfans.

Flöskurnar sem koma frá Châteauneuf-du-Pape eru ótrúlega fallegar og auðþekkjanlegar þar sem á hverri flösku er að finna merki Páfagarðs, skjaldarmerki borgar Avignon: Tveir krossaðir lyklar heilags Péturs.

Beastie Boys voru víst miklir aðdáendur þessara guðaveiga og gerðu víninu góð skil í laginu Body Movin’ þar sem þeir rappa „Like a bottle of Châteauneuf-du-Pape I’m fine like wine when I start to rap

Skál!