Englendingurinn Joseph Priestley fann árið 1767 upp aðferð til að búa til sódavatn með því að metta vatn með koltvísýringi. Aðferðin var þróuð áfram af ýmsum og fljótt var byrjað að blanda bragðefnum saman við sódavatnið. Í byrjun var gosið talið heilsusamlegt og var víða selt í apótekum.
Við Íslendingar vorum fljót að taka við okkur og gátum keypt gosdrykki í Reykjavík strax árið 1893. Í blaðinu Austra, sem var gefið út á Seyðisfirði mátti til dæmis lesa auglýsingu frá St. Stefánssyni árið 1896:
“Þegar þið drekkið bjór og brennivín á kvöldin, vaknið þið með timburmenn og vonda samvisku á morgnana; En mínir ilmandi gosdrykkir svala ykkur í sakleysi og einlægni.”
Árið 1913 stofnaði Stefán Th. Jónsson og Peter L. Mogensen Gosdrykkjaverksmiðju Seyðisfjarðar. Stefán Th. Jónsson byggði glæsilegustu hús bæjarins, rak fínustu verzlun landsins, átti fjölda báta og fiskverkunarhús og gaf út blöð. Verksmiðjan var rekin í kjallara barnaskólahússins og framleiddi Svenskt sódavatn, Almennt sódavatn, Hindbær Limonade, Champagne Limonade ofl.
Núna dreymir Vínkonuna um að Gosdrykkjaverksmiðja Seyðisfjarðar verður endurreist á Seyðisfirði þannig að hægt verði að dreypa á Champagne Limonade í góðra vina hópi. Skál


