Núna þegar páskarnir eru á næsta leiti fara margir að detta í súkkulaðiveislu oftast í formi páskaeggja en auðvitað eru margir sem kjósa einnig konfekt, trufflur ofl.
Vínkonan er búin að vera að leika sér að para saman rauðvín og súkkulaði. Þetta getur verið margslungið því að möguleikarnir eru óendanlegir og súkkulaði er ekki bara súkkulaði frekar en rauðvín er bara rauðvín.
Til dæmis, ef þú bragðar á ljúffengu glasi af þurru rauðvíni með dökku súkkulaði þá smakkast vínið beiskt og súrt. Þetta ójafnvægi á bragði kemur frá auknu magni flavanóls (mismunandi gerðir af tanníni) sem finnast bæði í súkkulaði og víni sem lendir í innbirðis átökum á tungunni!
En ef þú hittir á góða pörun ertu kominn með hið fullkomna ástarsamband<3
Gott mjólkursúkkulaði er venjulega um það 50% súkkulaði og 50% rjómi. Fitan úr rjómanum í mjólkursúkkulaði gerir það að verkum að mjólkursúkkulaði er auðveldara að para við rauðvín en dökkt súkkulaði.
Þegar valið er rauðvín með súkkulaði er gott að hafa í huga að silki, flauelsmjúk og mjúk vín eru besti vinur súkkulaðsins. Ekki velja tannínrík vín.
Ég vil gjarnan mæla með Apassimento víni þar sem þrúgurnar eru þurrkaðar að hluta og það gerir rauðvín sætara sem passar svo vel með súkkulaði.
Passitivo Appassimento Primitivo er lífrænt og býr yfir nokkuð djúpum, kirsuberjarauðum lit og opnum ilmi af rauðum berjum, pipar, kaffi og súkkulaði. Það er mjúkt í munni og með góða fyllingu, sultuðum ávöxt og vanillutón og tilvalið með páskaegginu!
Knús, Vínkonan