El Padre

Í miklu uppáhaldi hjá vínkonunni er rauðvínið El Padre. Það kemur frá vínhúsi Pablo Morande í Chile.

Samkvæmt mínum upplýsingum er El Padre eina vínið í Vínbúðunum sem er 100% Cabernet Franc (þið megið endilega leiðrétta mig ef að þetta er rangt). En þessi þrúga er oft notuð til að blanda við aðrar þrúgur.

El Padre er spænska og þýðir faðirinn og þá er vísað til þess að bæði Cabernet Sauvignon og Merlot þrúgurnar eru afkomendur Cabernet Franc og sú þrúga því kölluð faðir hinna.

Cabernet Franc er fínlegri og kryddaðri útgáfa af ættingja sínum Cabernet Sauvignon en þetta er kröftugt, öflugt og athyglisvert vín, dimmrautt á lit með dökkum ávöxtum. Nokkuð tannískt og fersk sýra.
Það þarf smá tíma til að opna sig, ég mæli með að umhella.
Algjörlega frábært vín! Fæst í Kringlunni og Heiðrúnu og kostar 3.199 kr.

Góða helgi kæru vinir !

Knús, Vínkonan❤️