Aldo Vajra Langhe Nebbiolo 2018


Aldo Vajra Langhe Nebbiolo 2018 er kirsuberjarautt. Þétt fylling, ósætt, fersk sýra og þétt tannín. Kirsuber, brómber, skógarber, blóm, ólífur. Meðalfyllt vín og nokkuð bragðmikið. Hentar frábærlega með páskalambinu eða bara til að njóta eitt og sér.
Nebbilo þrúgan hefur gefið af sér mörg af topp vínum Ítalíu. Hún hefur gert Barolo svæðið í Piedmont frægt fyrir sín frábæru vín. Það er hér sem vínin skila bæði viðkvæmum ilm og áleitnum tannínum. Skál