Crémant

Vínkonan elskar Crémant freyðivín!
Flest Crémant vínin eru gerð með svipuðu sniði og kampavín, þrúgurnar eru Pinot Noir & Chardonnay í flestum tilvikum og vínin gerð með sömu aðferð og Champagne.
Crémant-vín kosta aðeins brot af verði Kampavíns en þau bestu geta verið nálægt þeim í gæðum.
Bouillot sérhæfir sig í framleiðslu á Crémant-vínum sem eru hin freyðandi vín Búrgundíhéraðsins. Í Crémant-vínum er kolsýrugerjunin í flösku rétt eins og í nágrannahéraðinu Champagne. 
Louis Bouillot Perle de Vigne Brut er algjör draumur að mati Vínkonunnar.

Skál!